Fáðu fín flott fyrirtaks forrit frítt 

Að neðan eru upplýsingar um ýmis forrit sem hægt er að nota til að gera tölvuvinnu öruggari, betri og flottari. Forritin eiga öll það sameiginlegt að vera ókeypis og fá flest meðmæli þekktra tölvublaða. Í raun má hér finna forrit fyrir nánast hvað sem er og því í raun óþarfi að kaupa þau nokkurntíman. Ég hef einnig forðast það að nota Microsoft forrit, því óæskilegt er að mínu mati að láta eitt fyrirtæki yfirtaka tölvuna alveg. Upplýsingar um ókeypis forrit er einnig hægt að nálgast á slóðum eins og http://www.download.com, http://www.tucows.com, http://www.pricelesswarehome.org, http://www.aplusfreeware.com og http://www.pcworld.com/downloads/. Aðrar vefsiður sem vert er að heimssækja reglulega eru  http://update.microsoft.com/microsoftupdate/ til að uppfæra stýrikerfið, https://www.grc.com til að láta tékka á því hvernig vörnum tölvunar á Inernetinu er háttað, http://www.protonic.com, http://www.answersthatwork.com og http://annoyances.org til að leita svara við tölvuvandamálum. Til einföldunar má segja að ég sækist eftir eftirtöldu í tölvunni minni:

1.   Öryggi. Tölvan þarf að vera örugg fyrir óværu
2.   Kerfisyfirráð Ég vil vita eins mikið um tölvuna mína og hægt er og geta breytt uppsetningu hennar að vild
3.   Hraði. Tölvan þarf að ræsast hratt upp og ganga hratt í vinnslu. Óþarfa rusl má heldur ekki safnast í henni því það hefur áhrif á hraðann
4.   Skjalavinnsla. Ég vil geta nálgast skjölun mín hvaðan sem er og á sem einfaldastann hátt
5.   Upplýsingar. Ég vil geta náð í upplýsingar um allt milli himin og jarðar á sem einfaldastann og fljótastann hátt
6.   Samskipti. Ég vil geta haft samband við menn út og suður með tölvunni minni
7.   Afþreying. Tölvun mín styttir mér stundir þegar vinnan verður leiðinleg eða ég er á ferðalagi
8.   Vinnutól. En aðallega nota ég þó tölvuna mína sem vinnutól til skrifta, reikninga og skipulags 
9.   Annað.  Það er alltaf annað
 1. Öryggi - varnir og baráttan gegn illu öflunum (security)

1.3 Njósnavarnir (spyware) og önnur tölvuóværa

Gagnstætt vírusvarnarforritunum og eldveggjunum má nota öll þessi forrit í einu, þau bæta oft hvort annað upp. Microsoft Defender og Winpatrol eru alltaf í gangi (real time protection) og láta vita ef eithvað grunsamlegt er að gerast (oftast er það þó eithvað eðlilegt). Winpatrol veitir einnig mjög gagnlegar upplýsingar um eðlileg forrit sem eru í gangi (og við vitum oftast ekki af). Ókeypis útgáfurnar af Ad aware og Spyboot þarf að láta skanna tölvuna annað slagið (mánaðarlega eða oftar) til að leita að óværu, það sem þeir finna má yfirleitt alltaf eyða þar sem um óværu er að ræða. Fleiri forrit í þessum flokki er hægt að finna á vefsíðunni http://www.spywareinfo.com.

--   Microsoft defender (WindowsDefender.msi - http://www.microsoft.com)   Spyware Doctor (http://pack.google.com)
--   Spybot search and destroy (spybotsd15.exe - http://www.safer-networking.org/en/)   Ad Aware (aaw2007.exe - http://www.lavasoftusa.com)
--   Spyware guard(http://www.javacoolsoftware.com/spywareguard.html)   Winpooch Watchdog(http://winpooch.free.fr)
--   Winpatrol (wpsetup.exe - http://www.winpatrol.com)   Processguard (http://www.diamondcs.com.au/)
 2. Kerfisyfirráð (system control)

2.2 Að breyta kerfinu

Forritin hér að neðan eru sum svipuð forritunum að ofan nema hvað þau gefa möguleika á að breyta kerfinu á ýmsan hátt (eða skemma kerfið ef ekki er fairð varlega). Þið verðið þó að vita hvað þið eruð að gera í þeim tilfellum, skoðiði heimasíðurnar því vel. Það má breyta ýmsum stillingum í Windows sem erfitt er að nálgast annars með Microsoft Tweak UIAutohotkey má nota til að búið til flýtitakka að eigin þörfum. T.d. búið til lyklaborðssamsetninguna Fn-x til að ræsa Excel á röskan hátt. Með Keytweak er hægt að breyta lyklaborðinu algjörlega, láta t.d. h koma ef maður ýtir á f, p koma ef maður ýtir á u, d koma ef maður ýtir á g, o.s.frv., þið skiljið hvað ég meina. Þetta er kanski ekki gáfulegt en sumt fólk er skrýtið og hefur kanski not fyrir þetta. Er ekki enn búinn að setja þetta inn hjá mér en ætti kanski. XP Associate er til að stilla hvaða forrit keyra hvaða skrár. Hef ekki notað það en kanski gott að hafa það við hendina. Gnome partition býr til ný drif á tölvunni ef þarf og getur breytt stærð þeirra að vild. 

2.2.1   Microsoft Tweak UI (TweakUiPowertoySetup.exe - http://www.microsoft.com/windowsxp/downloads/powertoys/default.mspx )
2.2.3    Keytweak (KeyTweak_install.exe - http://webpages.charter.net/krumsick)   Xp Associate (XpAssociate.zip - http://www.memecode.com)

   Gnome Partition Editor (gparted-0.3.3.tar.bz2 - http://gparted.sourceforge.net)   Autohotkey (AutoHotkey104610_Install.exe-http://www.autohotkey.com)

2.3. Að breyta útlitinu

Hér eru ýmis forrit sem eiga að gera vinnuna auðveldari og jafnvel skemmtilegri. Ég var með nokkur Yahoo widgets sem er eiginlega samansafn ýmissa smáforrita, henti því svo út og fór í Desktop sidebar í staðinn, hætti með það og prófðia Objectdock í staðinn en er kominn aftur í Yahoo widgets. Alt Tab Thingy og Taskswitch XP gefa aukna möguleika ef ýtt er á alt-tab. Með Taskbar shuffle uppsett er hægt að breyta öllu dótinu á Taskbar stikunni neðst skjánum. mmm leyfir þér að stjóran hvað kemur upp þegar hægrismellt er á skrár í Windows Explorer og Send to Toys gefur möguleika á því að breyta Send to valstikunni sem kemur upp ásmat öðru þegar hægri smellt er á músatakkann í Windows Explorer.

2.3.1   Objectdock (objectdock_freeware.exe - http://www.stardock.com/products/objectdock/)   Send to toys (http://www.gabrieleponti.com/software/)
2.3.3   Taskbar shuffle (ts2.2_setup.exe - http://www1.freewebs.com/nerdcave/taskbarshuffle.htm)   mmm (mmminstall.exe - http://www.hace.us-inc.com)

  Desktop Sidebar (sidebarb116.exe - http://www.desktopsidebar.com)   Taskswitch XP (http://www.ntwind.com/software/taskswitchxp.html)

  Alt Tab Thingy (http://www.nymtec.com/?q=taxonomy/term/26)   Yahoo widgets(http://widgets.yahoo.com)
  Vista drive icon (http://drvicon.sourceforge.net/)

2.4. Nýtt kerfi

Ef stýrikerfið þitt er eithvað skrýtið, af hverju ekki bara að fá sér nýtt ....... fyrir frítt? Ég hef að vísu ekki gert það en hef hugsað um það. Að neðan eru heilu stýrikerfin, allt frá litlum kerfum sem sérstaklega eru ætluð til að greina og gera við vandamál á tölvunni ykkar, til kerfa sem eru með öllu, þ.m.t. Office hugbúnaði og eru því sjálfstæð. Flest eru þessi kerfi keyrð upp af geisladiskum (þ.e.a.s. tölvan eru "bootuð" um af þeim frekar en harða diskinum) og því má í raun halda Windows kerfinu óbreyttu. Knoppix er sjálfstætt kerfi með öllu, hægt er að fá í 2 stærðum, DVD stærð og CD stærð. Ulimate Boot CD for Windows, Ulimate Boot CDt CD og Bart's Preinstalled Environment er einnig keyrt upp á geisladisk. Þar eru ýmis forrit sem notuð eru til að greina vandamál með Windows stýrikerfið, þ.m.t. mörg af þeim forritum sem eru á þessari síðu. Atugið að þessi forrit eru í öllum tilfellum mjög stór og taka því langan tíma að hala niður. Portable apps er í raun ekki stýrikerfi heldur samsafn forrita sem keyrt geta sjálfstætt frá USB kubbi. Með því að hafa þessi forrit á USB kubbinum getur þú unnið frá hvaða tölvu sem er og alltaf verið með aðgang að forritum sem þú þarft..

2.4.1   Portable apps (PortableApps_Suite_Standard_1.0.exe - http://portableapps.com)   Ubuntu (http://www.ubuntu.com)
2.4.2   Bart's Preinstalled Environment (http://www.nu2.nu/pebuilder/help/)   Knoppix Linux (http://www.knoppix.net)

  Ultimate Boot CD for Windows (http://www.ubcd4win.com)   Damn Small Linux (http://www.damnsmalllinux.org)

  Virtual PC 2007 (VirtualPC.exe -  http://www.microsoft.com/windows/products/winfamily/virtualpc/default.mspx)   Ultimate Boot CD (http://www.ultimatebootcd.com)

  PCLinuxOS (http://www.pclinuxos.com)   Mojopac (MojoPacInstaller.exe - http://www.mojopac.com)

  VNware server (VMware-server-e.x.p-63231.exe, VMware-vix-e.x.p-63231.exe - http://www.vmware.com)  Mandriva One (http://www.mandriva.com)

  AjaxWindows (http://www.ajaxwindows.com)   eyeOS (http://eyeos.info)

  gOS (http://www.thinkgos.com/)   Glide (http://www.glidedigital.com/)

 4. Skjalavinnsla (file management)

4.1 Endurheimt týndra skjala og gagnaeyðing

Eraser er fyrir þá sem vilja losna alveg og algjörlega við skrár þegar þeim er eytt. Er langt frá því að vera nauðsynlegt en gott fyrir þá sem eru paranoja. Ef þú ert hinsvegar búinn að eyða skrá (venjulega, ekki með Eraser) þá er hægt að nota hin forritin til að reyna að finna skjalið aftur.

--   Eraser (Eraser586_setup.exe - http://www.heidi.ie/eraser/)   --  
--   Truecrypt (TrueCrypt Setup 5.0a.exe - http://www.truecrypt.org/)   --   PC Inspector smart recovery (pci_us_smartrecovery.exe - http://www.pcinspector.de)
--  Isobuster (isobuster_all_lang.exe - http://www.isobuster.com)   --   Zero Assumption Digital Image Recovery (zar81setup.exe - http://www.z-a-recovery.com)
-- 
FreeUndelete (freeundelete.exe - http://www.officerecovery.com)   --   PC Inspector file recovery (pci_filerecovery.exe - http://www.pcinspector.de)


4.3 Skráarflutningsforrit (FTP)

Þessi forrit eru notuð til að ná í skjöl frá öðrum nettengdum tölvum eða á netinu. Filezilla er klassískt forrit til að ná í skjöl yfir netið. Ég notaði Netdrive til að ná í og skila skjölum af háskólakerfinu þegar ég er að vinna heima. Einfalt og þægilegt í notkun, leiðbeiningar er að finna á gömlu vefsíðu HA. Nú er ég hinsvegar farinn að nota FireFTP sem er viðhengi (add-on) við Firefox. Því get ég gert alla mína skráarflutninga með Firefox en þarf ekki að opna annað forrit Gmail drive virkar svipað og ofangreind forrit. Forritið kemur þá upp nýtt drif í My Computer sem heitir Gmail drive. Ef skjöl eru sett í þetta drif eru þau send sjálfvirkt á Google svæðið ykkar og geymd þar. Handhægt því hægt er nálgast skjölin úr hvaða tölvu sem er. Onshare á að vera keimlíkt, það býr líka til nýtt drif í My Computer. Aðrir sem eru með Onshare og er með leyfi frá þér geta þá nálgast þessi skjöl í gegnum netið, virkar samt ekki hjá mér, veit ekki af hverju. LogMeIn gengur lengra því með því er hægt að stjórna tölvu sem er hinumegin á hnettinum í gegnum vafrann þinn. Putty er hægt er að nota til að vinna á einni tölvu úr annarri. Gluggi opnast í tölvunni sem þú ert í þar sem þú getur unnið í hinni tölvunni eins og þú sért í henni.

--   Gmail drive (gmailfs111.zip - http://www.viksoe.dk/code/gmail.htm)   --   Putty (putty.exe - http://www.chiark.greenend.org.uk/~sgtatham/putty)
--   LogMeIn Free (http://www.logmein.com)   --   Filezilla (FileZilla_2_2_0_setup.exe - http://sourceforge.net/projects/filezilla)
--   FireFTP (fireftp-0.97.1-fx.xpi - https://addons.mozilla.org/en-US/firefox/addon/684)
  --   Onshare (OnShare_Installer.EXE - http://www.onshare.com)


4.8 Skjala- og nafnabreytar

Hef ekki prófað Omniformat en það virkar sniðugt, breytir skjölum úr einu formi í annað, t.d. ritvinnsluskjölum í myndskjöl og öfugt. Lesið leiðbeiningarnar á heimasíðunni áður en forritð er sett upp. Það nýjasta nýtt er hinsvegar að gera þetta á vefnum og þarf þá ekki að setja upp neitt sérstakt forrit, Media-converter (http://www.media-convert.com), youconvertit (http://www.youconvertit.com/) og Zamzar (http://www.zamzar.com/)  gera slíkt. Það er líka orðið mikilvægt nú til dags að geta skrifað skjöl (t.d. úr Word) yfir á PDF (gert með því að velja print, EKKI save as...). Cute PDF er fínn í það, fyrst þarf að keyra converter.exe áður en forritið er sett inn. Renamer og File Renamer breyta nöfnum skjala í miklum fjölda. Fila renamer þó ónothæfur hér því hann skilur ekki íslenska stafi. Pfank er svolítið flóknari í notkun en þrælvirkar. Nota það forrit til að losa mig við íslenska stafi í skráarnöfnum, það veldur alltaf vandræðum. Myndaskjölum er hægt að breyta í textaskjöl á vefsíðu SkanR.com (http://www.scanr.com/).

4.8.1   Cute PDF writer (converter.exe og CuteWriter.exe - http://www.cutepdf.com)
4.8.2   ReNamer (ReNamer.exe - http://www.den4b.com)
4.8.3   PdfEdit955 (pdf995s.exe, ps2pdf995.exe, pdfedit.exe, signature995.exe - http://www.software995.com)   Omniformat (omniformat.exe - http://www.omniformat.com)

  File Renamer basic (http://www.sherrodcomputers.com)   Foxit PDF Editor (pdfedit.zip - http://www.foxitsoftware.com)

 5. Upplýsingar (information)

5.3 Orðabækur (Dictionaries)

Wordweb er sniðugt tól og hjálpar mikið til ef maður er að skrifa enskan texta. The Sage er  svipaður, er að prófa það núna. Núna er hinsvegar allt hægt á netinu (þá þarf maður auðvitað að vera nettengdur) og eru orðabækur þar með að finna á eftirfarandi síðum, Dictionary.com (http://dictionary.reference.com) og Wiktionary (http://wiktionary.org). Svo er auðvitað hægt að nálgast upplýsingar um allt milli himins og jarðar á Wikipedia (ttp://www.wikipedia.org)

--   The Sage (TheSage_Setup_1-4-0.exe - http://www.sequencepublishing.com   --  WordWeb (wordweb5.exe - http://www.wordwebonline.com), Mobysaurus (http://www.mobysaurus.com/)
--   Icelandic dictionary for Firefox (icelandic.xpi - https://addons.mozilla.org/)
 
--   US english dictionary for Firefox (US.xpi - https://addons.mozilla.org/)

5.4 Upplýsingagismó

Forrit til að sýna ýmsar smáupplysingar sem geta komið vel, svo sem dagatalið, veðurspána, gengið ofl. Á Google upphafssíðunni minni, iGoogle (http://www.google.com/ig), er hægt að hafa leitarvélar (Google, Wikipedia, Amazon, orðabækur), reiknivélar (venjulega, breyta á milli gjaldmiðla, breyta á milli mælieininga), linka á aðra Google þjónustu (Calendar, Bookmarks, Notebook, Gmail, Talk, Groups, Picasa ofl.), forrit til ð slá inn stutta minnispunkta, fylgjast með veðri, sjá hver IP talan þín er, tengjast MSN Messenger, fylgjast með ýmsum fréttaveitum (þ.m.t. Mbl og Vísi) o.fl. o.fl. Gmail drive er líka tengt Google, en með því er hægt að búa til netdrif á Google netsvæðinu, það sést þá sem Gmail drive í My Computer. Gallinn við iGoogle er auðvitað að nettenging þarf að vera í lagi til að þetta virki. þar kemur Klipfolio til skjalanna, þetta er sérstakt forrit sem nær í ýmsar gagnlegar upplýsinar á netið þegar nettenging er virk, en geymir þær einnig þannig að upplýsingar eru til staðar ef nettenging er ekki virk.

--   Klipfolio (KlipFolio-Install.exe - http://www.klipfolio.com) --   Weatherwatcher (http://www.singerscreations.com/)
--   Google desktop (www.google.com) --   A-Toolbar (MESetup.exe - http://www.metaeureka.com/download.shtml)


 8. Vinnutól (work)

8.1 Vísindi

Forrit sem ég hef safnað fyrir sjálfan mig, býst ekki við að þau komi nokkrum öðrum að gagni ...... og þó. R er tölfræðipakki sem ég kenn ennþá ekkert á en stefni að því í framtíðinni, ...... ef ég finn tíma. Ecopath with ecosym er forrit til að meta tengsl lífvera í vistkerfi. FiSat er tól til að mæla stofnstærðir eftir lengdardreifingum, til að nota það þarf að breyta kommum í punkta í regional options

--   Ecopath with ecosym (ewe51.zip - http://www.ecopath.org)   -- R (R-2.3.0-win32.exe - http://www.r-project.org)
--
FiSat II (FISAT_II_SETUP.zip - http://www.fao.org/fi/statist/fisoft/fisat/index.htm)  -- Fishstat plus (fst_plus.zip - http://www.fao.org/fishery/topic/16073)

8.2 Skipulagsforrit

Það er afskaplega mikilvægt að geta skipulagt tíma sinn vel, mér gengur það ekkert alltof vel og hef því leitað eftir hjálp hjá internetsins við þetta. Internetið færðu mér þá í hendurnar forritið Freemind en það er eitt að gagnlegri forritunum á þessari vefsíðu. þetta forrit er notað til að þróa verkefni og hugmyndir. Mamut Home Free er svona meira fyrir skipulag heimilisins á meðan Gantt project og Openproj er fyrir alvöu verkefnaskipulag (í stað Microsoft Project), ég prófaði Openproj en varð svo sem ekki heillaður eins og með Freemind. .

--   Freemind (FreeMind-Windows-Installer-0_8_0-max.exe -http://freemind.sourceforge.net)  -- Openproj (openproj-beta2.1.zip - http://openproj.org)
--   Diagram designer (DiagramDesignerSetup.exe - http://meesoft.logicnet.dk)  --   Mamut Home Free (setup.exe - http://www.mamut.com/uk/)
--   Gantt project (ganttproject-2.0.3.exe - http://ganttproject.biz)  --

8.3 Dagatöl

EssentialPIM og Time To eru forrit til að skipuleggja verkefni og tíma, svipað og gert er í Outlook 2003. Google Calendar (http://www.google.com/calendar) er samt  eiginlega búið að taka yfir allt mitt skipulagsfargan, mjög þægilegt og hentugt, gott að tengja við aðra, t.d. konuna og vinnufélagana. Ekki þarf að setja upp forrit bara tengjast með vafra og því hægt að nota í hvaða tölvu sem er. Einn galli er þó á þessu, það er bara hægt skoðað kalanderinn þegar nettenging er virk. Hægt að laga það að hluta með því að setja viðhengið (add-on) Provider við Lightning  Þessa dagana er ég einnig að glíma við það vandamál að samstilla (synca) símann minn við dagatalið. Þetta hefur ekki reynst þrautalaust. Ég hef leitað dögum saman á netinu, hef prófað vefsíðuna GooSync.com (https://www.goosync.com), en ekki gekk það, prófaði GcalSync en það virkaði ekki. Er þvi enn að leita. Google calendar quick add er einfalt viðhengi við Firefox. Með því er hægt að henda inn atburðum í Google calendar á einfaldan hátt án þess að opna dagatalið sjállft.

--   Mozilla Lightning (lightning-0.7-tb-win.xpi - http://www.mozilla.org/projects/calendar/lightning/)   --   Time To (timetosetup20070714.exe - http://www.davidberman.com/software/timeto.php)
--   Provider (provider_for_google_calendar-0.3.1-tb+sb.xpi - https://addons.mozilla.org/en-US/sunbird/addon/4631)   --   EssentialPIM (essentialpimproport1.exe - http://www.essentialpim.com)
--  
Google calendar quick add (google_calendar_quick_add-1.6.3-fx.xpi - https://addons.mozilla.org/en-US/firefox/addon/2405)
  --   GcalSync (gcalsync.jar - http://www.gcalsync.com)

8.4 Minnispunktaforrit

Hér eru ýmis forrit sem notuð eru til að skrá  minnispunkta, forritin til vinstri koma í stað minnisbókanna en þau til hægri í stað gulu miðanna. Ég hef fulla þörf fyrir báðar gerðir, ég skráði niður skyndihugmyndir, símanúmer o.s.frv. á gulu-miða-forritin en annaðhvort eyði þeim að því loknu eða færi inn í minnisbókarforritið. Það er því nokkurs konar langtímageymsla. Ég hef verið að prófa þessi forrit eitt af öðru en endaði á Evernote. Af gulu-miða-forritunum stóðu tvö eftir, Stickies og Post-it Note Light. Það síðarnefnda  er framleitt af fyrirtækinu sem frampleiðir pappírsmiðana og ætti því að vera traust. Það er einfalt í notkun og ekki með gallana sem hrjá hin forritin. Hitt er hinsvegar flottara og ég endaði á að nota það.

--   Evernote (Evernote_3.0.0.625.exe - http://www.evernote.com)  --   Stickies (stickies.exe - http://www.zhornsoftware.co.uk/)
--   Debrief Notes (http://debriefnotes.com/),   Note Tab light (http://www.fookes.com/),   Neomem (http://www.neomem.org),   Zulupad (http://www.gersic.com/zulupad/),   Treepad Lite (http://www.freebyte.com)  --   Post-it Note light (pn31lous.exe - http://www.download.com), StickIt (http://www.singerscreations.com),   Syncnotes ( http://www.cynapse.com),   Note it (http://www.veign.com/downloads.php),   Two Notes (http://www.softjournal.com/desktop_sticky_notes/),   Freebie Notes (http://www.freebienotes.com),   Memo fix digital (http://www.memofixdigital.com/)

8.5 Reikni og mælitól

Hér að neðan eru ými hjálpartól við almenna vinu. Powertoy Calculator, Calculator Plus og Graphcalc eru reiknivélar sem eiga að leysa þennan hefðbundna sem er í Windows af hólmi. Þessir eru allir með mun fleiri tólum og aðferðum til að reikna. Þrátt fyrir að finnast þeir flottir notaði ég þá mjög lítið, Excel er bestur við flókna útreikninga og svo er ég með einfalda reiknivél á Google heimsíðunni minni. Metric converter og Easy Unit Converter breyta á milli mismunandi mælieininga, en ég er líka komin með smáforrit á Google siðunni minni sem gera þetta. RJS Graph og Graph 4 eru smáforrit til að teikna föll og línur. Sniðgri en Excel í sumum tilfellum þar sem einungis þarf að skrifa formúluna á bak við fallið.  Núna má einnig reikna allt út í vafranum, t.d. á vefsíðunni Calculator (http://www.calculator.com). 

--   Crosshair (CrossHair.zip - http://www.mlin.net/)   --   FreeCalc (MoffFreeCalcSetup.exe - http://www.moffsoft.com/freecalc.htm)
--   Powertoy calculator (PowerCalcPowertoySetup.exe -http://www.microsoft.com)   --   Calculator plus (CalcPlus.msi - http://www.microsoft.com)
--  
Easy unit converter (euc12.exe - http://www.filesweb.com/easy_unit_converter.html)   --   RJS Graph (graph_setup.exe - http://www.rjsweb.net)
--  
Metric converter (metric_converter_246.zip - http://vaibhavweb.tripod.com)   --   Graphcalc 4 (GraphCalc4.0.1.exe - http://www.graphcalc.com)
--  
Changeunits (ChangeUnits3.2.zip - http://www.changeunits.com)   --   Graph 4 (SetupGraph-4.2.exe - http://www.padowan.dk/graph)

8.6 Skrifstofuvöndlar (office applications)

Nauðsynlegt nema maður hafi Microsoft Office og er sáttur við það eins og það er. Í Open office er að finna öll forrit sem þarf í vinnuna, ritvinnsluforrit, töflureikni ofl. Ég setti þennan pakka upp hjá mér til skoðunar og kom það sér vel því ég lenti í bölvuðum vandræðum með Word 2007.  Eina ástæðan fyrir því að ég nota þetta ekki er að Háskólinn útvegar mér ókeypis Microsoft Office pakkann og ég hef vanist því að nota hann. Einnig er hægt að vinna á skrifstofuvöndlum í gegnum vafrann, t.d. með Thinkfree (http://www.thinkfree.com), Zoho (http://www.zoho.com), Buzzword (http://www.buzzword.com) og Google Docs (http://docs.google.com).

--   Open office (OOo_2.3.1_Win32Intel_install_en-US.exe - http://www.openoffice.org)  --   AbiWord (http://www.abisource.com)
 --   Star office (http://www.sun.com/software/star/staroffice/index.jsp)

8.7 Smától

Hér eru ýmis forrit sem eiga að gera vinnuna auðveldari og jafnvel skemmtilegri. Ég hef ekki prófað Syncnotes sem virðist samt sniðugt. Vertex 42 er heimasíða með ýmsum tilbúnum Excel skjölum, y.d dagatölum. ASAP utilities er sniðugur aukapakki á Excel. Þar er að finna ýmsa fídusa sem geta stytt manni stundir við vinnu í Excel, þetta virðist hinsvegar hafa einhver skrýtin áhrif á Excelin hjá mér og ég tók þetta því út aftur.

--   Chemistry true Type Fonts (1LanzCHE.ZIP - http://www.aplusfreeware.com/categories/edu/chemistry.html)   ASAP utilities(http://www.asap-utilities.com)
--   Periodic Table classic(ptinstaller.exe - http://paulalanfreshney.com/education/)   Vertex 42 (http://www.vertex42.com)


 9. Annað (other)

9.1 Tölvan mín

Flestar tölvur koma með einhverjum forritum sem fylgja frá framleiðanda tölvunnar. Sum eru gagnlaus og leiðinleg, önnur eru nauðsynleg, t.d. reklar fyrir skjákort, hljóðkort o.s.frv. Hér er ég með það sem viðkemur minni tölvu, það getur komið sér vel að eiga það tiltækt.

9.1   Canon i550 og i560 prentarar(b4324mux.exe (fyrir i560), B645mux.exe (fyrir i550), b7101ENx.exe, i550_PUG_EN.exe, i560_PUG_EN.exe, EasyWebPrint.exe, http://www.canon.com)
9.2   Nokia 6230i sími(Nokia_PC_Suite_683_rel_14_1_eng_web.exe - http://www.nokia.com)
9.3   Trust TB1100 - 100-V2 teikniborðið(12050-02_06.exe - http://www.trust.com)
9.4   Trust WB-3400T vefmyndavél (14383_01.exe - http://www.trust.com)
9.5   Creative WebCam Vista Plus vefmyndavél (WCVL_PCDRV_US_1_02_02_0414.EXE, WCC_PCApp_US_1_71_02.exe - http://www.creative.com)
9.6   Medion MD 6471 skanni (sca6471uk.exe - http://www.medion.co.uk)
9.7   Yakumo BlueportPro Class I blátannabúnaður (Yakumo_BlueportPRO_Class_I.zip, man_1037110_20_2_yakumo_blueportpro_class_i.pdf - http://www.yakumo.com)
9.8   MSI RG54GS beinir (E6822v1.1.zip, C1_0_4_0_rg54gs.zip - http://www.msi.eu/ice/)
9.9   Logitech þráðlausa lyklaborð og mús S510 (setpoint400.exe - http://www.logitech.com)
9.10   Canon CanoScan LiDE 60 scanni (http://software.canon-europe.com)
9.11   Sony brennari ()
9.12   Brother MFC 9060 laser prentari ()
9.13   Acer Aspire 1690WLMi tölva(Aspire 1690 NB OLM Eng.pdf - 3a30.zip - 3 in 1 Card Reader 1.0.3.1.zip - Audio Driver Conexant 6.13.10.8335.zip - Broadcom 4401 LAN Driver Broadcom 4401 4.23.0.0.zip - Chipset Driver Intel 6.3.0.1007.zip - LAN Driver Broadcom 5788M 6.64.0.0.zip - Lan Driver Atheros AB5005G 4.0.0.14001.zip - Launch Manager 1.08.1e.zip - TouchPad Driver 7.12.3.zip -VGA Driver ATI 6.14.10.6543.zip - VGA Driver Intel 6.14.10.4250.zip - Wireless Lan Driver 802.11b+g 2.10.03.2004.zip - Wireless Lan Driver 802.11b+g 9.0.1.9.zip - enmupdate _20050603.zip - Modem Driver Conexant 7.22.0.0.zip - EZDock Modem Driver 2.1.47.zip - Acer GridVista 2.26.0407.zip - Acer eManager 1.0.29.44.zip -Acer eNetManagement 1.0.0.6.zip - Acer ePowerManagement 1.5.6.257.zip - Launch Manager 1.08.1e.zip, http://www.acer.com)
 

Titilsíða